Fimmtudagsfjör
Það er eiginlega magnað hvað veðrið í Kaupmannahöfn þessa stundina er mikill viðbjóður! Rok, rigning, myrkur! En af því að áramótaheitið mitt var að tuða minna þá ætla ég ekkert að tuða yfir þessu (meira en ég hef gert nú þegar) og ákveða að gera bara gott úr þessu. Samgleðjast með litlu krökkunum sem geta núna farið að drullumalla eða hoppa í polla (að því gefnu að þau fjúki ekki í burtu)... :D
Annars er sorglegt hvað maður er orðinn slappur við að ávarpa báða tryggu lesendurna mína (ég meðtalinn, veit að Þórunn kíkir á þetta af og til líka). Ef svo ólíklega vildi til að aðrir hafi slysast hingað inn þá bið ég þá bara afsökunar, ég hef bara frá svo afskaplega litlu að segja þessa dagana. Hápunktarnir voru sennilega að ég kláraði að horfa á Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan (sem var mikil snilld) og lágpunkturinn þegar ég þraukaði í gegnum Love Story (what was I thinking?!?).
Ég vona að enginn taki því illa upp en mikið svakalega var þessi mynd leiðinleg! Ég átta mig á því að maður átti að finna til með gaurnum því að konan hans dó en bæði vegna þess að persóna hennar var svo leiðinleg og pirrandi auk þess sem leikkonan (Ali MacGraw) getur ekki leikið þá óskaði maður þess eiginlega frekar að hún dræpist sem fyrst til að myndin myndi klárast. Að þessi mynd og hún hafi fengið tilnefningu til Óskarsverðlauna segir eiginlega allt um þau aumu verðlaun (glöggir geta séð að hún hefur varla leikið síðan (eðlilega, er vonlaus)). Ryan O'Neal átti svosem ágæta spretti í myndinni og var e.t.v. vel að sinni tilnefningu kominn (var frekar slow ár fyrir utan M*A*S*H auðvitað, jau jauuuu). Það besta við myndina var svo titillagið sem er auðvitað orðinn klassíker fyrir löngu síðan (þó svo mér finnist nýleg remix af því miklu betri) og ef titillagið er það besta við kvikmynd þá er ekki von á góðu. Í heildina voru þetta 99 mínútur af leiðindum sem ég fæ aldrei aftur... :(
Já, ég veit að ég ætlaði að tuða minna en þegar maður eyðir dýrmætum tíma sínum í svona hörmung þá er mun styttra í tuðið heldur en stuðið...
