fimmtudagur, desember 06, 2007

Sjötti í ... æ, þið vitið...

Var helvíti 'duglegur' í gær! Kom heim um sexleytið (við Þórunn fórum aðeins í Amager Centret áður), eldaði léttan kvöldverð og settist svo inn í sófa og las og las og las þangað til ég var búinn með bókina sem ég var að lesa og áttaði mig þá á því að ég hafði setið við lesturinn í næstum fjóra tíma! Gat bara ekki lagt frá mér bókina sem ég mæli núna eindregið með og heitir Watchmen, skrifuð af Alan Moore og teiknuð af Dave Gibbons. Og já, þetta er semsagt 'teiknimyndasaga' þannig að þetta er svona nett 'nördaleg' bók (semsagt ekkert fyrir stelpur)... ;)

Rakst annars á nokkuð netta klippu í gær af nokkrum njörðum sem höfðu tekið sig til og búið til einnar mínútu sönguppfærslu á The Godfather. Nokkuð vel að verki staðið, sérstaklega í ljósi þess að myndin sjálf er 175 mínútur, aldeilis sem þetta sparar manni tíma! :D

Rakst líka á samantekt sem einhver sem kallar sig Púkinn tók saman um uppruna jólanna sem ætti að vera öllum holl og góð lesning, sérstaklega þar sem þetta hefur nú verið í umræðunni undanfarið. Svo var líka einhver púki í gaurnum uppi á Skaga sem hringdi í Hvíta húsið til að panta viðtal við George Bush í nafni Óla gríss, alveg nettur djókur þar á ferð. Eina spurningin er hvað löggan var að skipta sér af þessu?!? Það er líka einhver púki í henni Britney Spears þessa dagana sem er hálf púkaleg við fyrrum fangann Paris Hilton og hótar hún að leka 'kynlífsmyndbandi' af henni á netið eftir einhvern dónaskap í þeirri síðarnefndu. Síðan hvenær er léttur vinkonukoss annars 'kynlífsmyndband'? Er það ekki meira svona létt, létt ljósblátt?!?

Svo er víst búið að reikna það út að Íslendingar verði 437.844 árið 2050, ekki 437.843 eða 437.845, nei, nákvæmlega 437.844! Það er hinsvegar ánægjulegt að vita að Íslendingum fer fjölgandi, ekki veitir af að það séu fleiri aðilar sem hægt er að segja svona fréttir af (gerum við ekki ráð fyrir að sú sem hafi verið síðust hafi dottið?). Ísland, best í heimi? Nei, meira svona næst verst...

Og að lokum er hérna meira af heimskum Bandaríkjamönnum (enda af nógu að taka). Þessi frétt er frekar spes, sérstaklega skemmtileg frásögnin af þessum sem 'afhommaðist' við það eitt að einhver kallaði 'Eldur, eldur!' framan í hann. Spurning um að fleiri fari að prófa þetta, kannski maður hendi sér út í business bara. Fyrst hægt er að selja kranavatn sem hómópatíulausnir á okurverði, af hverju ekki afhommanir í gegnum öskur? ;)

miðvikudagur, desember 05, 2007

Fimmti í jólagleði...

Það getur svo sannarlega 'tekið það úr manni' að spila fótbolta seint um kvöld, hvað þá þegar slíkt er iðkað tvö kvöld í röð. Var semsagt á fótboltaæfingu í gær á þeim yndislega tíma klukkan 22:00 - 23:00, svona koma þeir sem úthluta tímum hjá Kaupmannahafnarborg fram við okkur Íslendingana. Samsæri? Ég held það hreinlega. En merkilegt nokk þá nenna menn actually að mæta því við vorum 15 í gær sem verður að teljast harla gott. En allavega, var semsagt líka í fótbolta á mánudagskvöld á sama tíma, 22:00 - 23:00. Þetta væri ekki svo slæmt ef ekki væri fyrir það að þegar ég kem svo heim þá er ég í nákvæmlega engu stuði til að fara að sofa og ligg svo andvaka í að ganga eitt. Þetta skilar sér svo í því að ég er alveg gjörsamlega ónýtur á morgnana, eins og raunin var í morgun...

En þá að fréttum. Forseti Súdan ákvað að grípa inní ruglið með þennan vesalings breska kennara og ákvað að náða hana, bara sisvona, þegar hann sá framá að málið gæti leitt til milliríkjadeilu. Ákvað semsagt að trúarleg mál skildu að þessu sinni víkja fyrir þeim veraldlegu. En fólk ætti semsagt að láta sér þetta að kenningu verða, helst bara aldrei að nefna orðið Múhammeð. Undarlegir þessir trúarnöttarar...

Og fyrst við erum að tala um trúarnöttara þá eru þeir víst ansi margir í Bandaríkjunum ef eitthvað er að marka þessa frétt. 82% þjóðarinnar segist semsagt trúa á Guð, 79% á að kraftaverk geti gerst og 70% sögðust trúa á himnaríki og engla. Svo sögðust 42% 'trúa' á þróunarkenninguna. Veit ekki alveg með ykkur en er hægt að 'trúa' á vísindakenningu? Næstum jafn margir hafna hinsvegar þróunarkenningunni og trúa á 'vitsmunalega hönnun'. Það kemur ekki á óvart þegar haft er í huga að þriðjungur þjóðarinnar trúir svo á fljúgandi furðuhluti, nornir (wtf?!?) og stjörnuspeki. Þannig að niðurstaðan er þessi: Þriðjungur bandarísku þjóðarinnar eru úti á túni og 70% trúir á verur sem hafa ekki sést síðan á dögum Sesars (og fyrir því er engin sönnun önnur en trúarleg 'heimild'). USA best í heimi? Varla...

Talandi um heimska Bandaríkjamenn. Þessi gaur er klárlega einn af þeim fyrst hann heldur að til sé eitthvað sem heitir 'snjómaðurinn ógurlegi' og hvað þá að þessi steinhella sé fótspor eftir hann. Í besta falli væri þetta steingervingur sem myndi þýða að þessi 'snjómaður' hafi verið uppi fyrir MJÖG löngu síðan og kvikindið því LÖNGU dautt. En auðvitað dæmigert að líta aldrei á líklegustu skýringuna, að þessi steinhella sé bara, fyrir einskæra tilviljun, í laginu eins og risastór fótur, það selur ekki...

Og fyrst við erum að tala um þá sem eru að reyna að selja eitthvað. Hef heyrt að það sé mikil og góð starfsemi í kringum þá sem selja hómópatíu'lausnir' á Íslandi (og annars staðar í heiminum auðvitað). Hómópatía er sennilega mesta bull sem ég hef heyrt um og hef ég þó heyrt ansi margt bullið á minni sæmilega löngu ævi. Fyrir þá sem vita ekki alveg úum hvað málið snýst þá er kannski ágætt að lesa þessa með/á móti grein sem ég rakst á um daginn. Allavega á hreinu að það að selja vatn getur margborgað sig, en bara ef þú býrð til nógu heimskulega sögu á bak við uppruna þess... ;)

Lærði nýtt orð um daginn, Þórðargleði. Það er t.d. mikil Þórðargleði að horfa á þessa frétt. Ég veit að það er ljótt að hlæja að þessu, en samt, ef þér dettur í hug að láta setja sílíkon í rassinn á þér þá áttu skilið að láta hlæja að þér í kjölfarið, alveg óháð því hvort það gangi vel eða ekki. Orðið 'Þórðargleði' þýðir semsagt 'að gleðjast yfir óförum annarra', og þar hafið þið það... :)

Það er auðvitað líka hægt að hlæja að Ashley Young sem var tekinn með allt niðri um sig á dögunum og það rétt fyrir mikilvægan landsleik Englendinga á móti Rússum. Skemmtilegt! En vesalings ökukennaranum sem kom fram í Borat myndinni var víst ekki eins skemmt hvernig honum fannst Borat fara með sig (góð Þórðargleði þar líka) og hefur ákveðið að kæra framleiðendur myndarinnar. Bara ein spurning, hvernig er hægt að meta 'tjón' hans á 400.000 USD? Leiðinlegt þegar Þórðargleði eins verður að 'pay day' fyrir annan, only in America... ;)

Og svo að lokum, ef fólk er að vandræðast með að finna handa mér jólagjöf þá væri ég alveg til í svona klukku. Nörd-ish? Hell yeah!

mánudagur, desember 03, 2007

Þriðji í jólagleði...

Afrekaði það að vera nett 'duglegur' um helgina. Að vísu ekki svo ýkja mikið á laugardeginum en vann það svo sannarlega upp í gær. Vaknaði snemma og byrjaði á því að þvo nokkrar þvottavélar. Tók mig svo til og setti (gervi)grenið á svalirnar. Fór svo upp í Ryparken að keppa í handbolta og stóð mig bara nokkuð vel, skoraði eitt mark úr einni tilraun og var með tvo stolna bolta. Verð að taka það fram að ég var að spila í 'öfugu' horni, þ.e. því hægra (oftast betra að hafa örvhenta þar víst (já, eða jafnvel samkynhneigða)) og fyrir vikið verður þetta mark enn merkilegra þar sem ég kasta víst með þeirri hægri þó svo ég skrifi með vinstri. Þegar heim kom þá var orðið nógu dimmt til að ég gæti sett ljósin utan um grenið á svölunum og þar með er allt jólaskrautið endanlega komið upp. Verðlaunaði mig svo fyrir dugnaðinn með því að slaka VEL á það sem eftir lifði kvölds... ;)

Er byrjaður á jólaáhorfinu líka og renndi Bad Santa í gegn um helgina. Ef blindfullur Billy Bob Thornton kemur manni ekki í jólaskapið, hvað gerir það þá?!? Hef að vísu ekki enn látið freistast af öllu maltinu+appelsíninu sem mamma kom með á laugardag en þetta er víst bara tímaspursmál, semsagt ekki hvort heldur hvenær þetta verður allt drukkið, jafnvel í einni lotu, úh baby!

Vaknaði nokkuð snemma í morgun og lagði galvaskur af stað á hjólinu niður á Vestergade. Mjög gott stuff að hjóla í myrkrinu með jólalög Baggalúts í eyrunum. Það eina sem vantar núna er smá snjókoma og þá erum við sko aldeilis að dansa. Að vísu yrði þá helvíti erfitt að hjóla en ætli maður myndi ekki láta sig hafa það... :D

Talandi um jólalög Baggalúts! Þessir öðlingar hafa greinilega fengið hugboð frá mér (eða bara verið að bíða eftir fyrsta í aðventu, sennilega líklegra) því að ég var einmitt síðast í gær að velta fyrir mér hvort að það kæmi ekki nýtt aðventu- og/eða jólalag frá þeim fyrir þessi jól. Þið getið þá rétt ímyndað ykkur gleðina sem reis í hjarta mínu þegar ég opnaði Baggalút.is í morgun og við mér blasti frétt og linkur á þessa tómu gleði! Njótið vel...

Svo er réttast að enda á þessari skemmtilegu frétt. Huggulegt af þeim að skilja eftir þakkarkort. Eins og ég segi alltaf, ef þú ætlar að gera eitthvað rangt, gerðu það þá rétt! ;)