Ísland, best í heimi!
Dauði og djöfull! Nú er mér hreinlega öllum lokið! Sylvíu Nótt hefur tekist að selja mér þá hugmynd að senda eigi hana sem framlag Íslands í Eurovision þetta árið...
Vil taka það skýrt fram að mér finnst Sylvía Nótt ákaflega lítið fyndin og enn minna skemmtileg. Það má eiginlega segja að hún sé svo lítið fyndin og skemmtileg að ef ég hefði val þá tæki ég eldhússdagsumræður fram yfir hana sem sjónvarpsefni hvaða dag sem er. En samt sem áður þó tókst henni að (eins og Idol dómararnir segja iðulega) selja mér þetta lag sitt. Lagið er ekki gott, langt í frá, en það er samt töluvert skárra en hitt draslið sem var líka í boði þetta árið. Og hvað er það sem virkar í Eurovision þessa dagana? Smellnir textar? Grípandi laglína? Gott lag? Nei, ekkert af þessu. Einfaldlega að gera eitthvað öðruvísi. Með því að senda Sylvíu Nótt þá er það allavega uppleggið. Til hamingju Ísland? Já, svei mér þá, hví ekki? :D
Og Íslendingar eru svo sannarlega vanir því að vera landi og þjóð til sóma hvar sem þeir koma á byggð ból í heiminum. Þessi náungi var t.d. afskaplega þjóðlegur hér í Danaveldi á dögunum. Ætli hann hafi ekki verið að kynna nýju hrútspungana á Þorrabökkunum frá Múlakaffi, hef heyrt að þeir séu hnossgæti hið mesta. Snerti ekki á pungunum sjálfur, hvorki hrúts né af öðrum skepnum... ;)

4 Comments:
Áfram Ísland, segi ég nú bara. Silvía Nótt er það besta sem hefur komið fyrir þessa keppni hérna heima síðan Páll Óskar söng í gúmmígallanum. Vonandi verður okkur loksins vikið endanlega úr þessarri keppni og það má það eyða 70 milljónum á ári í að kaupa meira af góðum þáttum frá bbc.
Ég sá þessa svívirðilegu gaura vera að abbast upp á grey vörðinn í drollugarðinum í gær þegar ég var að hjóla heim!! Get svo svaaaarið það. Á ekki orð yfir dólgslætin!!! ;)
Trúi því btw ekki ennþá að þetta hafi ekki verið Gimmi ;)
What a great site wholesale sofas north carolina Blackberry cobbler reciepe Farmers home insurance minnesota digital security systems installed convertible top trike Thyroid disease high cholesterol Dishwashers stores car seat covers manufacturer preucil suzuki school http://www.blowjob-videos-7.info/Sylvia-saint-anal-galleries.html weight loss pills Free ways to lose weight fast Leaves and high blood pressure Amateurs teen girls crestor lipitor Download wheel of fortune slots
Skrifa ummæli
<< Home