sunnudagur, janúar 29, 2006

Sunnudagur til svefns...

Afskaplega getur verið þægilegt og gott að sofa út á sunnudögum (eða bara hvaða daga sem er). Hef ekki sofið svona vel út lengi og átti þetta eiginlega alveg inni og svo sannarlega skilið. Spurning um að gera þetta að daglegum hlut bara, svei mér þá...

Maður lifandi hvað við elduðum góðan mat í gær! Fengum gesti í kvöldmat og ákváðum að hafa það grand og fórum til slátrarans og keyptum nautalundir sem við steiktum á nýju grillpönnunni okkar. Ég dúllaði mér við að búa til Hasselbach (Hasselhoff?!?) kartöflur með og kokkuðum svo upp Jensen's Bøfhus piparsósu líka. Alveg fiiiiine!

Fótboltinn sem ég ætlaði af henda mér í í morgun féll svo niður þannig að ég verð að bæta með það upp með því að horfa á United vs. Wolves á eftir. Það er nú bara ekkert nema sanngjarnt... ;)

Áfram Ísland (þó leikurinn skipti nákvæmlega engu máli)!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home