föstudagur, febrúar 03, 2006

Föstudagsfjör!

Alltaf hafa föstudagar einhvern ævintýralegan blæ yfir sér. Helgin framundan, afslöppun (fyrir suma) og tækifæri til að lyfta sér upp og gera eitthvað skemmtilegt. Auðvitað er hægt að gera það á virkum dögum líka, eins og við hjónin gerðum einmitt í gær. Fórum út að borða og hentum okkur svo í bíó. Fórum að sjá 'The Gay Cowboy Movie', betur þekkt sem Brokeback Mountain. Kom bara á óvart, bjóst nú ekki við miklu, var samt alveg flaming en það pirraði mig ekki mikið. Tveir þumlar upp þar á ferð...

Og magnað hvað við Dói vorum sannspáir varðandi handboltann, einn sigur í milliriðli og Ísland endar í 5-8 sæti (nánar tiltekið 7. sæti). Dæmigert fyrir íslenska landsliðið að drulla upp á bak þegar það er minnsti möguleiki á árangri. Liðið er nú sennilega bara ekki betra en þetta. Og svo komu Danir mér verulega á óvart með því að salta Rússana og tryggja sig þannig í undanúrslit. Ætli maður neyðist þá ekki til að halda með Dönunum, fyrst maður býr nú einu sinni í landinu þeirra... ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home