fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Slydda

Þremur dögum eftir snjókomuna miklu þá er nánast allur snjórinn farinn. Og í þokkabót er komin þessi fína slydda með góðum vindi í ofanálag. Heppilega er veðrið að tryggja að maður fær ekki heimþrá, minnir mann allavega núna rækilega á hvernig veðrið er á Íslandi alla daga (líka á sumrin)... ;)

Fékk fínan glaðning um hádegisbilið þegar póstkonan hringdi bjöllunni hjá mér og afhenti mér pakka. Við nánari athugun var þar á ferð afmælisgjöf frá stóra bróðir með góðri hjálp frá amazon.co.uk. Í pakkanum var bókin Use of Weapons eftir Iain M. Banks og allt Firefly safnið (sem ég mæli eindregið með að allir reyni að verða sér úti um og glápi á). Kann ég bróður mínum ákaflega miklar þakkir fyrir sendinguna :D

Talandi um bækur. Hafði það loksins af að klára Ljónið, nornina og klæðaskápinn þannig að núna get ég horft á myndina. Bókin var svosem ágæt, hélt mér samt engan veginn við efnið (sem skýrir kannski hversu langan tíma tók að lesa hana). Ætli ég renni ekki myndinni í gegn um helgina bara.

5 Comments:

At 6:41 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Drottningin er svo yfirgengilega kúl í myndinni. Æ loooov hör. Hún ein er ástæða til að skella myndinni í tækið.

 
At 10:26 e.h., Blogger Grímur Jónsson said...

Hún er að vísu Nornin, ekki Drottningin... ;)

 
At 10:58 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

já, en hún hélt hún væri drottning yfir Narniu...Dööö...

 
At 11:15 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Nei oj! Hún er frekar óhugnaleg..ekki mundi ég vilja mæta henni ein útá götu. Hún hélt samt alltaf kúlinu...verð að viðurkenna það

 
At 3:29 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

You have an outstanding good and well structured site. I enjoyed browsing through it Coleman powermate 6250 with robin subaru engine sticker paper for printer 2000 nissan sentra http://www.barcodescanners7.info/ftlauderdalecelebrexlawyer.html what is the difference between darvocet and percocet new hampshire bennington laser tatoo removal Effexor xr venlafaxine hcl capsules Registered complaints vw passat morris county tattoo removal Search engine marketing search engine placement seo company effect of xanax on blood sugar Parental control emails tattoo removal of texas latina free turlingtons tattoo remover

 

Skrifa ummæli

<< Home