Af stórafmælum og Útvarpshöfði...
Viðburðarrík og þrælskemmtileg helgi að baki sem innihélt sorg (klúðrið mikla í fótboltaleiknum), gleði (Radiohead tónleikar) og mikið át (stórafmæli á Solbakken). Það er greinilega komið sumar hérna í Köben því ekki nóg með að hitinn hafi stigið upp úr öllu valdi þá er dagskráin sífellt að verða þéttari og skemmtilegri. Engar fleiri innisetur, nei takk!
Við byrjum að sjálfsögðu á afmælisveislunni á Solbakken. En áður en ég segi frá því þá kemur hér eitt lítið og létt reikningsdæmi (mest fyrir Sólveigu svo hún geti æft sig):
Þrír ungir menn halda sameiginlega afmælisveislu. Þessir þrír ungu menn heita Jonathan, Kristján Daði og Guðjón Ingi. Samanlagur aldur þeirra er 32 ár. Kristján Daði er yngri en Guðjón Ingi. Aldur Jonathans er 90,625% af samanlögðum aldri þeirra. Hvað er hver þeirra gamall?
Áhugasamir geta reiknað þetta út ef þeir vilja, allavega hef ég engan áhuga á að vita svarið þar sem ég veit það nú þegar... :D
En afmælisveislan var sneisafull af veitingum (enda ekki við öðru að búast þegar Heiðrún og Erla taka sig saman og baka) og spurning hvort maður þurfi ekki að henda sér í overtime í ræktinni eftir allt átið, svei mér þá...
Eftir afmælið þá héldum við frá Solbakken heim til Jonna og Erlu og hituðum okkur upp fyrir Radiohead tónleikana. Húsið opnaði klukkan sjö en þar sem við nenntum ekki að hanga í röð eins og búrar þá mættum við bara um hálf níu en fengum samt ágætis sæti ekki langt frá sviðinu. Um níuleytið byrjaði svo Radiohead að spila af mikilli áfergju og tóku rúmlega tveggja tíma langt session þar sem farið var í gegnum alla helstu slagarana auk þess sem nokkur ný lög voru tekin. KB Hallen (þar sem tónleikarnir voru haldnir) var sneisafull af fólki og ekki leið á löngu þar til hitinn í kofanum tók að rísa í saunu hæðir og ég get fullyrt að sjaldan eða aldrei hef ég verið jafn sveittur við það eitt að sitja á rassgatinu að hlusta á tónlist! Hljómsveitin var klöppuð upp tvívegis og lauk svo frábærum tónleikum á að taka Karma Police og tóku allir í húsinu þátt í söngnum. Gríðarleg skemmtun og gott ef Radiohead verður ekki bara með einokun í iTunes hjá mér næstu daga...
Eftir tónleikana héldum við aftur heim til Jonna og Erlu til að gíra okkur niður. Tókum létt session í nýju afmælisgjöfinni hans Jonna sem er sannkallaður 'stuð'leikur þar sem mest fjórir geta spilað í einu. Leikurinn gengur semsagt út á það að vera fyrstur (eða allavega ekki síðastur) í að ýta á hnapp eftir að hljóð + ljós á þar til gerðu tæki hættir. Ef maður álpast til að vera síðastur (tjah, eða ekki fyrstur ef maður tekur 'extreme' útgáfuna) þá er maður 'verðlaunaður' með því að fá létt rafstuð í handlegginn! Óendanleg uppspretta gleðistunda! Ah, good times...
Var svo kominn heim um eitt leytið og sofnaði afar vært eftir annasaman dag og helgi. Suðið í eyrunum eftir tónleikana hverfur svo vonandi þegar líður á daginn... ;)

1 Comments:
Þetta stærðfræðidæmi er bara bull! Eina sem hægt er að fá út úr þessu af viti er að Jonathan er hundgamall!!
Skrifa ummæli
<< Home