laugardagur, maí 06, 2006

Slakur á kantinum...

Dagurinn í dag verður lengi í minnum hafður. Forsaga málsins er sú að klukkan 13:30 að staðartíma (danskur tími) þá áttum við í FC Ísland leik við Team Punanni, lið sem hafa nokkrum sinnum mæst áður á knattspyrnuvellinum í leikjum sem allir hafa verið harðir og spennandi. Í dag varð ákveðinn undantekning á þeirri reglu...

Nú halda kannski sumir að liðið í heild sinni hefði spilað illa og skíttapað en svo var alls ekki! Við vorum að spila okkar besta leik það sem af er tímabilinu og allir í liðinu að berjast eins og þetta væri þeirra síðasta og í hálfleik vorum við orðnir einum manni fleiri, þar sem einn í liði Punanni fékk rautt spjald, og þremur mörkum yfir. Í síðari hálfleik kem ég svo inn á vinstri kantinn, stöðu sem ég hef ekki spilað síðan ég veit ekki hvenær. Eftir um fimm mínútna leik þar kemur sending inn í teig Punanni, Oddur karfi (því hann brann heldur duglega í góða veðrinu) skallar boltann yfir markvörðinn og boltinn er á léttu skoppi fyrir framan opið markið. Það eina sem ég þurfti að gera var að reka höfuðið eða fótinn í boltann og skora einfalt mark...

Ég veit eiginlega ekki hvað gerðist. Kannski var þetta of einfalt færi, kannski hafði ég of mikinn tíma, kannski blindaðist ég af sólinni (var að vísu með hana í bakið á þessu augnabliki) eða kannski er ég bara ekki nógu sterkur skallamaður. Allavega þá tókst mér ekki þetta annars einfalda verk að setja boltann í netið! Boltinn skoppaði nokkrum sinnum fyrir framan mig og þegar ég mundaði höfuðið þá hitti ég boltann illa og í staðinn fyrir að sjá boltann liggja í netinu þá rann hann eiginlega af enninu á mér og framhjá markinu! Þið getið rétt ímyndað ykkur hlátrasköllin sem ómuðu í eyrunum á mér frá hliðarlínunni! Að vísu heyrði ég þau ekki sjálfur því ég hló svo mikið sjálfur að eigin aulaskap!!!

Eftir leikinn (sem við unnum að lokum sannfærandi 7-3) þá var kosinn maður leiksins og þar lenti ég í öðru sæti á eftir Karfanum sem vann þennan titil verðskuldað enda skoraði kvikindið fjögur mörk í leiknum. En það sem er samt mest svekkjandi er ekki það að hafa ekki skorað heldur að hafa næstum verið kosinn maður leiksins fyrir það eitt að klúðra dauðafærinu. Ætti kannski ekkert að kvarta, ef ég hefði skorað hefði ég sennilega ekki fengið eitt einasta atkvæði í kosningunni... ;)

3 Comments:

At 9:29 e.h., Blogger Jonni said...

þetta var rosalegt! Þvílíkur blunder!!

 
At 8:26 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

ég hló upphátt við lesturinn!

 
At 9:52 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er náttúrulega snilld. Það sem mér finnst mest ótrúlegt er samt að þú sért í það góðu formi að þú komist af vinstri kantinum og upp að marki andstæðingana ...

 

Skrifa ummæli

<< Home