mánudagur, maí 01, 2006

Fram þúsund menn í þjáðum löndum...

Hef svosem engan sérstakan áhuga á 1. maí sem slíkum nema auðvitað fyrir þær sakir að vegna hans hef ég getað legið í leti heima í allan dag. Mætti vera svona 1. maí fílingur í hverjum mánuði eða jafnvel bara einu sinni í viku. Kannski ég taki bara þátt í mótmælum verkalýðsins og heimti að vinnuvikan verði stytt í fjóra daga, hversu ljúft væri það?!? :D

Það er kannski ekki úr vegi að taka létt helgaryfirlit svona á mánudegi, til þess að þeir sem áhuga hafa (sem eru ekki ýkja margir að vísu) geti fylgst með því sem er að gerast hérna úti í Köben. Við Þórunn fórum allavega á laugardagskvöldið á Havana sem er kúbanskur veitinga- og dansstaður og hittum þar íslenska læknanema í Kaupmannahöfn. Þar var setið, drukkið, étið og dansað fram eftir kvöldi og fyrir þá sem þekkja ekki til salsasveiflunnar var létt kennsla í boði hússins. Ágætis staður, helst til dýr samt...

Í gær var svo vaknað snemma og haldið á Valby íþróttasvæðið til að mæta Fox United í þriðja leik tímabilsins. Greinilegt er að FC Ísland er farið að slípast betur saman sem lið því við höfðum verðskuldaðan sigur að lokum, 4-2, sem var síst til of stór. Siggi vinnuhestur opnaði markareikninginn og rauðhærði KR-ingurinn Oddur setti svo þrjú kvikindi (þarf væntanlega ekki að taka fram að hann sé rauðhærður þar sem allir KR-ingar eru rauðhærðir (enda er hann kominn í beinan kvenlegg af Bjarna Fel í báðar ættir)). Fyrsti sigur tímabilsins staðreynd og gleðin eftir því...

Í gærkvöldi var Þórunn svo búin að lofa að passa fyrir Stefán og Sóleyju þannig að við mættum til þeirra um klukkan sex í gærkvöldi til að líta eftir Margréti Nótt. Það var einstaklega auðvelt verk og létt, þurftum varla að hafa fyrir henni á nokkurn hátt. Eftir að hún var sofnuð þá lögðumst við bara fyrir framan sjónvarpið og horfðum á eina níu þætti af Beðmálum í borginni. Einstaklega ljúft og rólegt kvöld...

Svo hafa letin og rólegheitin bara verið viðvarandi í dag eins og áður kom fram. Að vísu er Þórunn búin að vera eitthvað slöpp undanfarið, með lumbru, eins og hún segir sjálf (ekki þó vegna þess að ég hafi verið að lumbra á henni, síður en svo). Vona bara að ég verði ekki orðinn svo latur í lok dags að ég geti vaknað í vinnu í fyrramálið, verð samt alveg að viðurkenna að nokkrir dagar í viðbót í þessum letiham væru alls ekki illa þ(v)egnir... ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home