Hiti og sviti
Sökum mikillar blíðu með tilheyrandi sól og hita þá ákváðum við Þórunn að hittast í Amager Center eftir vinnu hjá mér í gær til að kaupa fleiri 'sumarföt'. Keypti mér tvennar 3/4 buxur og einar stuttbuxur og að auki tvo boli í H&M. Góð kaup í ljósi þess að ég átti bara einar stuttar buxur fyrir sem voru verulega farnar að láta á sjá. En núna getur klæðaskápurinn semsagt boðið mér upp á ágætis úrval þannig að ég þarf ekki að vera í sömu buxunum alla daga... ;)
Annars var einhver leti í okkur hjónum í gær því við ákváðum að slaufa dansinum fram á næsta vetur, bæði af því að það fer að styttast í próf hjá Þórunni og líka bara til að fá smá pásu. En við munum að sjálfsögðu halda okkur við reglulega og stíga léttan dans í hvert sinn sem einhver hendir salsa tónlist á fóninn. Í staðinn fórum við í fínan göngutúr niður á strönd og kíktum á hvernig miðar með nýju baðströndina á austanverðri Amager eyju. Allavega nokkuð ljóst að þangað verður mikið sótt þegar tækifæri gefst, sannkölluð Mallorca stemmning... :D
Jonathan Gerlach Pedersen ákvað svo að eiga afmæli í dag og að sjálfsögðu óska ég honum innilega til hamingju með þann stórskemmtilega árangur. Nú er hann víst orðinn jafn mikið gamalmenni og ég og gott ef ég sá ekki örla á nokkrum gráum hárum á kollinum á honum þegar hann mætti í morgun. Allavega er orðið tímabært að panta fyrir hann vist á elliheimili, betra að vera tímanlegu í þessu...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home