mánudagur, febrúar 13, 2006

Helgaryfirlitið

Þetta var nú meiri helgin! Vaknaði eldsnemma á laugardagsmorgun til að fara alla leið upp í Gladsaxe til að taka þátt í fótboltamótinu. Spiluðum sex leiki (2x6 mín hver) en komumst ekki í úrslit. Vorum að vísu eina taplausa liðið í mótinu og líka það markahæsta en merkilegt nokk þá dugði það samt ekki til því að við gerðum þrjú jafntefli í þessum sex og það var víst einu jafntefli of mikið. Liðið hans Jonna hinsvegar fór alla leið og vann úrslitaleikinn í vítaspyrnukeppni. En þrátt fyrir vonbrigðin þá var þetta hrikalega gaman og nokkuð ljóst að ég verð fyrsti maðurinn til að skrá mig til leiks að ári...

Eftir að mótinu var lokið þá var brunað í bæinn aftur (í strætó þ.e.), beint í betri fötin og út aftur (og upp í strætó). Vorum mætt á Þorrablótið rétt fyrir sjö og vorum bara nokkuð tímanlega sem kom mér verulega á óvart. Fengum þetta fína borð fyrir okkur sjö (ég, Þórunn, Sigríður, Jonni, Erla, Gugga og Björgvin) og drykkjan og átið hófst fljótlega eftir það. Þvílíka gleðin! Menn voru fljótir að hella í sig rauð-/hvítvínsflöskunum sem voru á borðinu og þeir allra hörðustu drukku ótæpilega af bjór með. Heppilega var boðið upp á gos á barnum og nýtti ég mér það að sjálfsögðu. Eiginlega fáránlegt, boðið upp á frían bjór og rautt/hvítt en ekkert fyrir mig :(

Ég varð nú fyrir smá vonbrigðum með þetta Þorrablót. Þegar við fórum um rúmlega tvö var ekki búið að hringja á einn einasta sjúkrabíl (komu víst þrír í fyrra) en ég sá að löggan var að koma inn þegar við vorum að fara þannig að það er aldrei að vita, gæti hafa byrjað af 'alvöru' eftir að við fórum. En fyrir utan það var þetta hin bestasta skemmtun!

Sváfum svo fram undir hádegi í gær og var það verulega verðskuldað. Fékk svo SMS frá Hauki handboltaþjálfara og hann plataði mig í æfingaleik á móti einu af þremur fyrstu deildarliðum Grænlendinga (ekkert grín hér á ferð). Stórskemmtilegur leikur sem við því miður töpuðum. Ég setti þó eitt úr horninu, hef greinilega engu gleymt (enda engu að gleyma)... ;)

Vaknaði í morgun og gat varla stigið í fæturna, greinilega of mikið að taka svona tvo daga í röð í íþróttirnar. Samt endalaust gaman... :D

Mæli annars með að fólk hlusti á þetta, Ricky Gervais alltaf jafn skemmtilegur...

2 Comments:

At 11:31 f.h., Blogger Jonni said...

Ég er ennþá í sigurvímu eftir þessa vítaspyrnukeppni ...

 
At 10:33 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

ég frétti af ansi skrautlegu kvöldi ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home