miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Ah, loksins...

Loksins, loksins, loksins!!! Í dag opnaði formlega fyrsti hluti af verkefninu sem ég er búinn að liggja yfir síðan eftir jól. Mikill léttir og, það sem er meira um vert, mikil ánægja hjá öllum sem koma að málinu. Fyrir áhugasama bendi ég á að kíkja á Rafræna Reykjavík og skoða það sem er þar í boði og prófa. Hauuuuuuuuu :D

En eins og venjan er þá þýðir þessi áfangi engan veginn að ég sé kominn í pásu og geti bara slappað af, o sei sei nei! Núna tekur bara við næsta verkefni sem er alveg jafn viðamikið og tímafrekt. En eins og við segjum alltaf í bransanum, same old, same old...

Frétti af ansi hreint sniðugum þætti/podcasti um helgina sem ég náði í og hef legið í hláturskasti yfir síðan. Snillingurinn Ricky Gervais ásamt félaga sínum Steve Merchant (þeir skrifuðu saman bæði The Office og Extras þættina) taka sig til reglulega ásamt vitleysingnum Karl Pilkington (sem er annað hvort fyndnasti eða heimskasti maður í heimi) og ræða heimsmálin. Óborganlegt alveg hreint!

Og fyrir ykkur (eða eiginlega okkur) Sci-Fi lúðana þarna úti (þið vitið hverjir þið eruð!) þá ættuð þið endilega að kíkja á þetta. Mikið gaman, mikið grín, gott flipp... :D

1 Comments:

At 1:28 f.h., Blogger Skaffen-Amtiskaw said...

Takk fyrir að nafngreina mig ekki sem einn af þessum Sci-fi lúðum :D

 

Skrifa ummæli

<< Home