Meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó...
Það tók mig smá tíma að átta mig á því í morgun að ég væri ekki staddur á Íslandi heldur ennþá í Kóngsins Köbenhavn (af hverju er alltaf talað um kóngsins, hélt að drottningin væri hér við völd?!?). Í gær þegar ég fór að sofa var byrjað að vora en í morgun þá var greinilega ákveðið á veðurstofunni að taka 180 gráðu beygju og stefna hraðbyri í veturinn aftur. Úti er semsagt þessi fíni snjóbylur og stefnir í að allt fari á kaf í snjó þegar líður á daginn með tilheyrandi skakkaföllum fyrir danskan almúga. Þeir allra hörðustu mættir á snjóruðningsvélarnar að skafa stéttarnar og þeir allra slöppustu nota þetta sem tækifæri til að hanga heima og gera ekki neitt (nema ég, er að vinna)... ;)Gerði annars ákaflega góða ferð á handboltaæfingu í gærkvöldi. Fyndið með þessar handboltaæfingar, þær eru einn og hálfur tími en samt fer yfirleitt minnstur hlutinn af þeim í handbolta. Það er alltaf byrjað á fótbolta í allavega 45 mínútur og svo tekinn smá handbolti í lokin ef menn eru í stemmningu. Eftir massa fótbolta (þar sem mér tókst að hlaupa með hnéð á stöngina á eigin marki, enn hálf aumur eftir það) þá tókum við svona leik þar sem við spilum á eitt mark og útiliðið (sem er að sækja) fær fimm tilraunir til að skora a.m.k. þrjú mörk. Ef þeim tekst að skora þrjú þá er það bara fine en ef þeim tekst það ekki þá er refsing (10 maga, 10 armbeygjur eða 10 hopp). Var þvílíkt að brillera og setti einhver fjögur mörk, tvö af línu og tvö úr hægra horninu (sem þykir alltaf merkilegt fyrir mann sem kastar með hægri (sem þó er örvhentur, wtf?!?))... :D
Quantum materiae materietur marmota monax si marmota monax materiam possit materiari?

2 Comments:
Mmmm.. hlakka til að koma :D þó að það sé snjór!
This is very interesting site...
» » »
Skrifa ummæli
<< Home