miðvikudagur, október 18, 2006

Wednesday, what, what? Thursday! The third day...

Í fréttum er þetta helst...

Þórunn og Laddi tóku á sig það stórræði á sunnudag að ganga alla leið frá heimili sínu að Bremensgade 17 út til Fields verslunarmiðstöðvarinnar. Ekki er vitað á þessari stundu hversu löng sú vegalengd er en heimildarmenn segja að ferðin hafi tekið rétt rúman klukkutíma. Að sögn þátttakenda göngunnar var víst ákveðið að taka Metró til baka í stað þess að leggja á sig að labba heim aftur líka.

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofunnar hefur sími þeirra hjóna verið hleraður undanfarið. Hleranirnar hafa leitt í ljós að Laddi hefur undanfarna daga hringt nokkur símtöl í ónefnda ferðaskrifstofu í Danmörku í þeim tilgangi að panta skíðaferð fyrir þau hjónin í lok janúar. Heimildarmaðurinn tjáði okkur einnig að ferðin verður farin 27. janúar og er ferðinni heitið til Canazei í ítölsku Dólómítafjöllunum. Laddi neitaði að tjá sig um málið að svo stöddu.

Sést hefur til Helga Þórhallssonar í Danmörku og samkvæmt vitnisburði starfsmanna á Kastrup flugvelli afgreiddu þeir töskurnar hans frá Peking. Hluti af farangri hans var glænýtt Callaway X-18 golfsett með öllu sem hann sagði víst kunningjum sínum í Kína að hann hafi keypt fyrir son sinn. Frekari athuganir leiddu í ljós að Helgi tók svo leigubíl til Bremensgade 17. Óvíst er á þessari stundu hvort hann verði þar til langframa en heimildarmaður okkar hjá Flugleiðum tjáði okkur að hann ætti flug frá Danmörku til Íslands á morgun, 19. október.

Og þá að veðri. Í Kaupmannahöfn er 10 stiga hiti, suðvestan 5 km/s vindur og léttskýjað. Hiti mun haldast óbreyttur næstu daga en búist er við úrkomu á morgun og föstudag.

Takk fyrir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home