Hitt og þetta af engu
Sem ég sit hérna á skrifborðinu mínu á Vesterbrogade, lít út um gluggann sem er mér á hægri hönd og sé rigninguna og alskýjaðan himininn dettur mér bara eitt í hug: Hvaða 'snillingur' fann eiginlega upp þetta ömurlega fyrirbæri sem við köllum í daglegu tali mánudaga?!?
Það gæti verið einhver mánudagsmæða í mér eftir 'afrek' helgarinnar í hand- og fótbolta. Tjah, ef miðað er við að við töpuðum með sjö mörkum í handboltanum á laugardag og svo 6-0 í fótboltanum í gær þá er kannski ekkert skrýtið að maður sé eitthvað ósáttur. Gæti nú varla á mér heilum tekið ef United hefði ekki tekið Liverpool í kennslustund á Old Trafford í gær og unnu 2-0. Ef sá leikur hefði tapast lægi ég sennilega enn heima undir sænginni minni...
Þó svo ég hafi ekki verið að gera góða hluti í íþróttunum um helgina (ef undan er skilið frábær árangur minn sem United stuðningsmaður) þá var ég að gera hrikalega gott mót í barnapössun! Hanna Gunna og Ómar fengu okkur hjónin til að passa Agnesi og komu því með hana til okkar um miðjan dag á laugardag með hellings farangur, ferðarúm og læti. Okkur Agnesi kom einstaklega vel saman og við skemmtum okkur konunglega við gláp á Latabæ og við að leira. Ég sá svo um að lesa fyrir krílið og koma því í rúmið og það gekk svona líka fínt, skvísan kvartaði ekki einu sinni þegar ég bauð góða nótt, slökkti og fór út úr svefnherberginu! Spurning um að skipta um starfsvettvang bara... ;)
Eyddum gærkvöldinu í mikilli og góðri leti. Gláptum bara sjónvarp og létum okkur líða vel. Hentum Marséringu mörgæsanna í tækið og ég verð bara að segja að sú mynd kom mér ákaflega mikið á óvart! Vel gerð mynd, vel tekin og bara hin fínasta skemmtun. Það sem þessar blessuðu mörgæsir þurfa að þola til að koma ungum sínum á legg, svo er ég að kvarta yfir smá mánudagsmæði. Ég ætti hreinlega að skammast mín... :D

2 Comments:
Kannski ekki spurning um að skipta um starfsvettvang, heldur spurning um að fara að fjölga mannkyninu c",).
ó snap! sammála ;) eða nei! þið verðið að koma til Íslands fyrst!!
Skrifa ummæli
<< Home